
Ekki sóttu margir um að
keyra hjá Kaupfélaginu. Annar vörubifreiðarstjórinn sem vinnur hjá
kaupfélaginu er að hætta, og er að fara yfirí verktakageirann. En
einungis einn sótti um að keyra hjá Ksh. Og þessi eini sem sótti um
var boðaður til viðtals hjá kaupfélagstjóranum í fyrradag, og eftir
að umsækjandin spurði kaupfélagstjórann um kaup og kjör sem hann
fékk að vita hjá stjóranum, þá afþakkaði umsækjandinn pent þau kaup
og kjör sem stjórinn tjáði honum.
Í morgun hitti eg þann sem sótti um og hann
sagðist næstum hafa verið kjaftstopp þegar stjórinn sagði honum hve
mánaðarlaunin væru, ríflega 130.000. Eitthundrað og þrjátíuþúsund,
plús yfirvinna, kannski nást þá launin í 250.000? sem er
skömm.
Að keyra vöruflutningarbíl á öllum tímum
sólarhrings er mikil ábyrgð og þrældómsvinna. Ökumaður er sjaldan
heima og vinnur flest öll kvöld og sumar nætur og er oft í miklu
kapphlaupi við svonefnda kjaftakellingu (ökurita) og
hvíldartíma.
Eg fer þess á leit við stjórn Ksh að stjórinn
kynni sér hvað aðrir flutningabílstjórar hafa í kaup á tíman og á
mánuði. Eg fullyrði það að þessi 130 þúsund sem Ksh greiðir/býður á
mánuði í laun megi í það minnsta margfalda það með þremur ef ekki
meira hjá flest öllum flutningafyrirtækjum/verktökum.
Að bjóða á árinu 2007, 800 kall á tíman er skömm,
algengt tímakaup hjá vörubifreiðarstjórum og tækjamönnum er frá
1.500 og uppúr á tímann. Eg get sagt stjóranum það að fyrir rúmum
20 árum síðan eða svo var algengt að menn sem óku vörubíl og voru á
vinnuvélum fengju ekki minna en 1.000 > þúsundkall á tíman.
Manni virðist að mörgu leiti þetta ágæta rótgróna
framsóknarkaupfélag sé ekki í neinum takti við það sem önnur
fyrirtæki bjóða,sem er miklu betri kjör.
Ekki stoppa bifreiðarstjórarnir lengi hjá Ksh sem
er skiljanlegt,enda er önnur vinna annarstaðar margfalt betri
launuð.

Íbúabyggð. Þetta er agalegt.
Olíukálfur, gámur, boddí, aftanívagn og bretti:.
Hörmung.